Ummæli forsætisráðherra í fjölmiðlum um stöðu EES-samninganna

72. fundur
Miðvikudaginn 22. janúar 1992, kl. 14:00:00 (3094)

     Eyjólfur Konráð Jónsson (um þingsköp) :
     Hæstv. forseti. Að sjálfsögðu mun ég reyna að koma á fundi í utanrmn., helst á morgun, og tilkynni það hér með að ég mun reyna að ganga á milli manna í nefndinni

þannig að það dragist ekki og finna góðan tíma eins og venjan er að gera. Hvenær sem til mín kemur ósk um að halda fund í utanrmn. þá verður hann að sjálfsögðu haldinn.