Ólafur Ragnar Grímsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Það væri nauðsynlegt fyrir hæstv. fjmrh. að kynna sér langa sögu þessa máls. Ég minni á að fyrir rúmum áratug flutti ég ásamt Vilmundi heitnum Gylfasyni það mál hér á Alþingi að fram færi opinber rannsókn á fjármálum og eignum Íslenskra aðalverktaka og eignarhaldsfyrirtækja þess fyrirtækis. Það var Sjálfstfl. með þáverandi formann Sjálfstfl. Geir Hallgrímsson í broddi fylkingar sem kom í veg fyrir það hér á Alþingi að sú tillaga væri samþykkt. Sjálfstfl. hefur staðið vörð um Íslenska aðalverktaka og eignarhaldsfyrirtæki þess á Alþingi frá ómunatíð.
Ég vil einnig geta þess að þegar formaður Alþfl., núverandi utanrrh., fór í það í tíð síðustu ríkisstjórnar að eiga viðræður við þetta batterí sem á Sameinaða verktaka, undir forustu núv. hæstv. heilbrrh., sem var formaður þeirrar viðræðunefnfar, óskaði ég eftir formlegri aðild fjmrn. að þeim samningaviðræðum. Þeirri ósk var hafnað. Utanrrn. þorði ekki að veita fjmrn. aðgang að þeim viðræðum vegna þess að þeir vissu að ég mundi sem fjmrh. beita mér fyrir því að það yrði gerð heildarúttekt á þessari eignamyndum og farið í það að kanna allar leiðir til þess að sá auður, sem hefur ekki verið skapaður af þessu fólki heldur hefur fyrst og fremst verið skapaður út á einkaréttarforréttindi sem nokkrum fjölskyldum og Sambandinu hafa verið veitt í áratugi af viðskiptum við herinn, væri gerður upptækur. Núv. hæstv. utanrrh., með hæstv. heilbrrh. sem formann viðræðunefndarinnar, þáverandi formann fjárveitinganefndar, hafnaði þessari ósk.
Það er svo líka staðreynd málsins að á síðasta kjörtímabili var núv. hæstv. fjmrh. í fararbroddi þingmanna sem vildu auka skattfrelsi hlutafjár. Honum tókst meira að segja að mynda meiri hluta á Alþingi á móti mér sem fjármálaráðherra, hann fékk nokkra framsóknarmenn með sér til að mynda þingmeirihluta til að auka skattfrelsi hlutafjár.
Það er alveg ljóst að sú meginstefna sem Sjálfstfl. hefur fylgt í gegnum tíðina er að auka skattaleg forréttindi hlutafjár og standa vörð um þetta batterí í Íslenskum aðalverktökum, sérstaklega í Sameinuðum verktökum.
Ég hef barist fyrir því í þrjú ár innan síðustu ríkisstjórnar og nú í stjórnarandstöðu að hér yrði tekin upp samræmd skattlagning eignatekna sem kæmi í veg fyrir það sem hér hefur verið gert. Þegar ég hóf þá baráttu var búið til mikið gerningaveður á móti mér í þinginu af Sjálfstfl. og með núv. fjmrh. í fararbroddi, utan þings af Morgunblaðinu og sérstöku dótturfyrirtæki Sjálfstfl. í Samtökum sparifjáreigenda. Það er alveg velkomið að rifja þá sögu upp í umræðunum fyrir hæstv. fjmrh.