Ólafur Ragnar Grímsson
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Ég vil í sjálfu sér þakka hæstv. fjmrh. fyrir að hafa gefið málefnalegt svar við minni spurningu hér. Hins vegar verð ég að lýsa nokkrum vonbrigðum með efnisatriði svarsins.
Hæstv. fjmrh. endurtók það, sem hæstv. forsrh. sagði fyrir rúmri viku eða svo, að ríkisstjórnin mundi ekki eins og nú væri ástatt vilja koma inn í samningana fyrr en á lokastigi þeirra. Kjarninn er hins vegar sá í samþykkt Verkamannasambandsins að það er óskað eftir því að ríkisstjórnin komi inn í viðræðurnar strax.
Jafnframt spurði ég um hvort hæstv. fjmrh. væri reiðubúinn að lýsa því yfir eða hæstv. félmrh. að ríkisstjórnin væri tilbúin að breyta því frv. sem hér á að samþykkja þótt á síðara stigi væri. Ég geri mér ljóst að það verður ekki gert á þessum sólarhring. Ríkisstjórnin vill væntanlega fá frv. samþykkt fyrst. En það er spurningin um viljayfirlýsingu hæstv. ríkisstjórnar að senda þá tilkynningu til samtaka launafólks að ríkisstjórnin sé tilbúin í viðræður um að breyta ákvæðum þessa frv. muni það greiða fyrir kjarasamningum. Verkamannasambandið hefur þegar lýst því yfir að efstu atriðin á þess blaði séu að fá breytingar á því frv. sem hér á að samþykkja, bandorminum. Þess vegna þarf ríkisstjórnin þegar á næstu dögum að svara því, ekki bara hér í þingsalnum heldur gagnvart Verkamannasambandi Íslands og öðrum samtökum launafólks, hvort hún er reiðubúin í slíkar viðræður nú þegar.