Ráðstafanir í ríkisfjármálum 1992

73. fundur
Fimmtudaginn 23. janúar 1992, kl. 04:21:00 (3220)


     Forseti (Björn Bjarnason) :
     Vegna þessarar fyrirspurnar vísar forseti til þeirra umræðna sem fóru fram áður um þingsköp á þessum fundi og þeirra upplýsinga sem þar komu fram um fjarveru hæstv. heilbrrh. og þá staðreynd að hann gegnir störfum sem heilbrrh. þar til hann hverfur af landi brott núna í morgunsárið. Þess vegna sér forseti ekki að neinn ráðherra hafi tækifæri til að koma á þessari stundu til að svara þessum fyrirspurnum. Á þessum fundi núna, á meðan hæstv. heilbrrh. gegnir störfum sínum, er ekki þess að vænta að ráðherra komi hér sem sé hans staðgengill.