Lánsfjárlög 1992

74. fundur
Fimmtudaginn 23. janúar 1992, kl. 12:23:00 (3249)

     Jón Kristjánsson (andsvar) :
     Herra forseti. Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir það andsvar sem hann gaf og vissulega er þessi yfirlýsing mikilvæg, en hún breytir því ekki að það er full ástæða til að samþykkja þessa heimild til handa fjmrh. Ef þessi mál leysast á farsælan hátt, sem ég vona, er náttúrlega enginn að segja að fjmrh. þurfi að nota þessa heimild, en ég trúi því ekki að hann vilji ekki hafa hana eða treysti sér ekki til að hafa hana og meðhöndla hana á skynsamlegan hátt.