Virðulegi forseti. Það sem ég helst staldra við í þessu frv. og hef að nokkru leyti nefnt áður er ákvæði þess að sjóðurinn skuli lagður niður þegar við gildistöku þessara laga. Mér þykir rétt að doka við með slíkt þar til skýrð eru þau misræmi sem eru í skýrslu Ríkisendurskoðunar um sjóðinn sem út kom á sl. hausti annars vegar og ársreikningi sjóðsins hins vegar fyrir árið 1990. Það er ekki viðunandi fyrir Alþingi að fyrir liggi tvö ólík álit sem gefin eru út með stuttu millibili um sama málið. Þar sem Ríkisendurskoðun heyrir undir Alþingi er eðlilegt að Alþingi látið málið til sín taka. Ég tel að Alþingi ætti að óska eftir skýringum frá Ríkisendurskoðun til að reyna að glöggva sig á því á hverju þessi munur grundvallast. Síðan eigum við að ræða þær skýringar og þegar það liggur fyrir taka menn væntanlega ákvörðun um lok málsins.
Ég tel líka að þetta sé slæmt fyrir þá stjórnarmenn, sem árituðu reikningana og staðfestu þá þar með, að vera lagðir niður áður en málinu lýkur og skýringar eru fengnar á þessum mun því að þeir eiga líka rétt á því að geta sagt sitt álit á málinu þegar og ef skýringar Ríkisendurskoðunar liggja fyrir. Fyrir því eru ákaflega eðlileg og auðskiljanleg rök. Ég bendi á að með áritun sinni hafa stjórnarmenn tekið ábyrgð á sig og með því að verða sviptir umboði sínu og lagðir niður nú þegar hvílir á þeim sú spurning hvort þeir hafi brugðist skyldu sinni og þeir eiga ekki hægt um vik að skýra sína afstöðu ellegar bera af sér sakir ef fram koma. Því tel ég eðlilegt að gildistökuákvæðið verði látið bíða þar til Alþingi hefur fjallað um skýringar sem ég vænti að verði um beðnar frá Ríkisendurskoðun.
Þetta er ekki eina skýrslan af þessu tagi. Við höfum líka annað dæmið nákvæmlega eins þar sem er verulegt misræmi á skýrslu Ríkisendurskoðunar annars vegar og ársskýrslu Byggðastofnunar hins vegar sem er árituð af Ríkisendurskoðun rétt eins og ársskýrsla Framkvæmdasjóðs. Það mál tel ég eðlilegt að
fari með sama hætti og ég var að lýsa hér varðandi Framkvæmdasjóð Íslands. Það mun hins vegar gefast tækifæri til að ræða það mál í framhaldsumræðu um skýrslu Byggðastofnunar sem enn er á dagskrá og mig minnir að hafi verið frestað 26. nóv. sl. og hv. 2. þm. Vestf. er í miðri ræðu eins og hann minnir á öðru hverju svo menn gleymi því ekki. Ég kem því til með að beita mér fyrir því að málsmeðferð varðandi það mál verði með þeim hætti sem ég var að lýsa að ég teldi eðlilegt varðandi Framkvæmdasjóð Íslands.