Ólafur Þ. Þórðarson
:
Herra forseti. Sporin hræða. Ég minni hæstv. forsrh. á sölur eigna frá ríkinu sem ég tel að hafi því miður ekki verið forsvaranlegar. Annað dæmið er frá Framkvæmdasjóði sjálfum þegar hlutabréf Framkvæmdasjóðs í Fjárfestingarfélagi Íslands voru seld. Hitt dæmið er salan á Útvegsbankanum. Það er fullkomin ástæða til að vantreysta hæstv. ríkisstjórn í þessum efnum, að þannig verði staðið að sölu þessara eigna að forsvaranlegt sé.
Það er mjög mikils virði að hæstv. forsrh. hafi lýst því hér yfir að þetta verði selt á hæsta verði. En það er ekki aðeins spurning um að selja á hæsta verði. Það er spurning hve mikið er sett á markaðinn í einu og er verið að setja vöruna á markaðinn þegar ekki er hægt að selja hana. Hæstv. forsrh. gæti hugleitt hversu mikið af skíðavörum er hægt að selja í júlí. Það er nefnilega ekki sama hvernig að þessari sölu er staðið og ég ítreka að það var full alvara á bak við mínar athugasemdir í þessum efnum. --- [Fundarhlé.]