Ólafur Ragnar Grímsson
:
Virðulegi forseti. Það hefur verið rakið ítarlega í umræðunum hvernig þær ákvarðanir um lánveitingar úr Framkvæmdasjóði sem teknar voru á valdatíma Sjálfstfl. frá árunum 1983 til ársins 1988, einkum á sviði fiskeldis og við sameiningu ullarfyrirtækja, hafa leitt til þess að að mati sérfróðra aðila er Framkvæmdasjóður Íslands nú gjaldþrota. Það er mjög mikilvægt að þeir flokkar og þeir forustumenn sem þannig hafa borið ábyrgð á þessari sögu geri sér grein fyrir því hverjar eru afleiðingar verka þeirra. Þessi saga hefur verið rakin ítarlega í umræðunum og hún hefur ekki verið hrakin. Hún stendur því alveg skýr.
Í öðru lagi hefur komið fram að vanda hefði þurft betur til meðferðar málsins, bæði í þinginu og eins af hálfu hæstv. ríkisstjórnar.
Í þriðja lagi hefur komið fram við meðferð málsins að þingið hefur í höndum tvenns konar gjörólík álit frá Ríkisendurskoðun varðandi stöðu Framkvæmdasjóðs, annars vegar ársreikninga fyrir árið 1989 og 1990 sem ríkisendurskoðandi hefur skrifað upp á og staðfest og talið í góðu lagi hvað efnahag sjóðsins snertir og hins vegar skýrslu sem afhent var hæstv. forsrh. í ágústmánuði á liðnu ári þar sem talið er að sjóðurinn sé gjaldþrota. Þingflokkur Alþb. hefur ákveðið að óska eftir sérstakri greinargerð og skýrslu frá Ríkisendurskoðun þar sem þessi undarlegi mismunur í niðurstöðu stofnunarinnar verði skýrður og þingið hafi þá tækifæri til að fjalla um þær skýringar síðar í vetur. Vegna þess hvernig er komið fjárhag Framkvæmdasjóðs teljum við alþýðubandalagsmenn ekki ástæðu til þess að leggjast gegn frv. Við teljum hins vegar ýmislegt í málsmeðferðinni og hvað snertir skýrslu Ríkisendurskoðunar vera með þeim hætti að á þessu stigi sé ekki hægt að greiða frv. atkvæði og munum þess vegna sitja hjá við afgreiðslu málsins. Ég greiði því ekki atkvæði.