Framkvæmdasjóður Íslands

74. fundur
Fimmtudaginn 23. janúar 1992, kl. 13:13:00 (3262)

     Páll Pétursson :
     Frú forseti. Með þessari lagabreytingu er verið að stofna hagsmunum ríkisins í hættu og e.t.v. gera mikil verðmæti lítils virði. Við framsóknarmenn áteljum vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í málinu og leggjumst gegn samþykkt þessa frv. Ég segi nei.