Lánsfjárlög 1992

74. fundur
Fimmtudaginn 23. janúar 1992, kl. 13:23:00 (3263)

     Jón Kristjánsson :
     Virðulegi forseti. Þessi tillaga gerir ráð fyrir að fjmrh. verði veittar lágmarksheimildir til að greiða fyrir síldarsöltun til Rússlands og grípa inn í það vandræðafálm sem verið hefur um þessi mál. Að tryggja þennan mikilvæga saltsíldarmarkað okkar til frambúðar er eitt brýnasta hagsmunamál íslenskra útflutningsatvinnuvega og þar með landsmanna allra, ekki síður en þess fólks sem beinlínis hefur atvinnu af þessari starfsemi. Ég segi já.