Ólafur Ragnar Grímsson
:
Virðulegi forseti. Mig undrar satt að segja málflutningur hæstv. fjmrh. í þessum umræðum. Þegar ég kom í fjmrn. lá fyrir mikið vandamál, Slippstöðin á Akureyri, sem skapað hafði verið í tíð ríkisstjórnar þar sem Sjálfstfl. fór með forræði þessara mála. Hv. þm. Halldór Blöndal, núv. samgrh., hafði verið í fararbroddi sem fulltrúi Sjálfstfl. í stjórn Slippstöðvarinnar til þess að láta smíða skip sem enginn kaupandi var að og engar veiðiheimildir hafði. Þegar ég átti viðræður við stjórn Slippstöðvarinnar og framkvæmdastjóra og forstjóra hennar var alveg ljóst að sú ákvörðun að smíða þetta skip, sem Sjálfstfl. bar höfuðábyrgð á, var meginástæðan fyrir rekstrarerfiðleikum fyrirtækisins. Ítrekaðar tilraunir voru gerðar til þess að selja þetta skip án árangurs. Síðan tók fjmrn. þá ákvörðun í samráði við annan megineignaraðila fyrirtækisins, bæjarstjórnina á Akureyri, að gefa fyrirheit um að fjmrn. mundi ásamt þessum eignaraðila beita sér fyrir því að komið yrði til móts við Slippstöðina vegna þeirra erfiðleika sem þessi ákvörðun hafði leitt af sér. Í því skyni var haldinn formlegur fundur --- ég er að verða búinn, virðulegi forseti --- ( Forseti: Tíminn er búinn, hv. þm.) með fulltrúum fjmrn., fjmrh. og ráðuneytisstjóra með stjórnendum fyrirtækisins á Akureyri og með bæjarstjórn Akureyrar. Hæstv. fjmrh. ætti fremur að sjá sóma sinn í því að fylgja málum fram með eðlilegum hætti en að vera að slá ómerkilegar pólitískar keilur eins og hann var að gera í síðustu ræðu sinni.