Jón Kristjánsson
:
Virðulegi forseti. Ég verð að segja að svör hæstv. menntmrh. valda mér miklum vonbrigðum. Í rauninni valda þau mér mikilli furðu því að það gerist hér í ræðustól á hv. Alþingi að menntmrh., yfirmaður Ríkisútvarpsins, ásakar fréttastofu Ríkisútvarpsins um hlutdrægni í fréttaflutningi. Þetta er mjög alvarlegur hlutur og hlýtur að verða að ræða á öðrum vettvangi og undir öðrum formerkjum hér á hv. Alþingi.
Það er enginn að halda því fram að fréttastofa Ríkisútvarpsins sé hafin yfir gagnrýni. Spurningin fjallaði einfaldlega ekki um það. Hún fjallaði um það að tveir hæstv. ráðherrar og einn hv. stjórnarþingmaður í kjölfarið bera fréttastofu Ríkisútvarpsins alvarlegum sökum. Það er engin tilviljun að slíkt ber næstum því upp á sama daginn. Þetta hlýtur að hafa verið rætt í stjórnarliðinu. Hér hlýtur að vera eitthvað meira á ferðinni. Og svör hæstv. menntmrh., staðfesta það. Hér er mjög alvarlegur hlutur að gerast. Er það hlutdrægni að skýra frá málum sem koma illa við ríkisstjórnina? Á fréttastofan að hætta því? ( Gripið fram í: Banna slíkt bara.) Eða banna slíkt? Mér er spurn.