Lánasjóður íslenskra námsmanna

78. fundur
Þriðjudaginn 11. febrúar 1992, kl. 16:27:00 (3378)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti vill svara hv. 2. þm. Vestf. strax áður en umræðu um gæslu þingskapa heldur áfram. Það er hægt að gera samkomulag milli þingflokka ef um er að ræða mál þar sem talið er að umræða gæti orðið nokkuð mikil. Í þessu tilfelli var sá þingmaður, sem bað um þessa utandagskrárumræðu, ekki sáttur við hálftíma umræðu. Það hefur áður verið gert og eru til fordæmi fyrir því að samið sé um lengri tíma. ( ÓÞÞ: Í hvaða grein þingskapa er forseti að vitna í?) Ég vísa til 72. gr. þingskapa um þetta efni. Það er það sem hefur gerst í þessu tilviki eins og áður eru mörg dæmi um.