Ólafur Ragnar Grímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Það er nú nokkur tilbreyting að hafa hæstv. utanrrh. hér í þingsalnum. Vakin var athygli á því u.þ.b korteri síðan, hæstv. utanrrh., að enginn þingmaður Alþfl. væri hér í salnum. Tilefni þess var að í sjónvarpi kom formaður þingflokks Alþfl. fram og lýsti því yfir að mjög vafasamt væri að það væri stuðningur í þingflokki Alþfl. við frv. um Lánasjóð ísl. námsmanna. Hv. þm. Guðrún Helgadóttir vék að því áðan, þegar hæstv. utanrrh. var ekki í þingsalnum, sem hann er sjaldnast, að það væri mjög erfitt að ræða þetta frv. um Lánasjóð ísl. námsmanna vegna þess að ein meginforsenda frv. væri sú hve lánasjóðurinn væri illa staddur fjárhagslega en hv. þm. Sighvatur Björgvinsson hefði verið formaður fjárveitinganefndar á undanförnum árum og því væri nauðsynlegt að hann væri viðstaddur þessa umræðu um Lánasjóð ísl. námsmanna. Í sjálfu sér gerðu menn enga athugasemd við það þótt hv. þm., núv. heilbrrh., væri í Þjóðarsálinni. Það er misskilningur hæstv. utanrrh. En athugasemdin var á þá leið hvort eðlilegt væri að hefja hér umræður um Lánasjóð ísl. námsmanna án þess að sá maður, sem af hálfu þingsins bar meginábyrgðina á fjárlögunum á undanförnum fjórum árum, núv. hæstv. heilbrrh., Sighvatur Björgvinsson, væri viðstaddur umræðuna. Það er kjarni málsins, hæstv. utanrrh. Þessi fælni Alþfl. við að standa fyrir máli sínu og vera hér í þingsalnum til þess að taka þátt í umræðum er athyglisverð. Og það er auðvitað athyglisvert að formaður þingflokks Alþfl., sem sagði þjóðinni í sjónvarpinu í gær að ekki væri stuðningur fyrir frv. um Lánasjóð ísl. námsmanna í þingflokki Alþfl., hefur ekki sést hér í þingsalnum. Hefur hann kannski verið settur í farbann, hæstv. utanrrh.?
Vandinn er sá að það er mjög erfitt að ræða frv. um Lánasjóð ísl. námsmanna án þess að þeir menn af hálfu Alþfl., sem borið hafa ábyrgð á þessum málum á undanförnum árum og bera enn ábyrgð, séu viðstaddir. Það er óhjákvæmilegt að hæstv. utanrrh. fái að heyra þessar skýringar hér vegna þess að hann fylgdist ekki með umræðunni. Ef hæstv. utanrrh., formanni Alþfl., finnst óeðlilegt að menn óski eftir því að Alþfl. sjáist hér í þingsölum til þess að standa fyrir máli sínu þá er rétt að hann segi það hreint út og hafi kjark til þess að segja það en sé ekki að skjóta sér á bak við svona ómerkilegar athugasemdir eins og hann var með áðan. Er það þannig að Alþfl. þorir ekki að taka þátt í umræðunni um Lánasjóð ísl. námsmanna af ótta við það að ágreiningurinn í flokknum verði afhjúpaður? Er það þess vegna sem formaður Alþfl. sést allt í einu hér í þingsalnum að hann er að reyna að koma í veg fyrir það að ágreiningurinn í Alþfl. verði afhjúpaður?
Ég held að það sé réttast, hæstv. menntrmh., úr því að við tveir tókum að okkur þessa ósvinnu að reyna að gera þetta samkomulag hér, sem greinilega er misnotað út og suður af mönnum, að menn hverfi

frá því þó mér þyki það leitt því erfitt er að efna í þessa umræðu við þær aðstæður sem hér eru, einkum og sér í lagi eftir að hæstv. utanrrh. hefur séð sérstaka ástæðu til þess að koma inn í þetta mál með þessum hætti.