Ólafur Ragnar Grímsson
:
Virðulegi forseti. Það felst stjórnmálaleg afstaða í því hvert nýr forsrh. kýs að fara í opinberar heimsóknir. Forsrh. Íslands Davíð Oddsson kaus að fara í sína fyrstu opinberu heimsókn til Noregs. Það var eðlilegt. Hann kýs að fara í hina aðra heimsókn til Ísraels. Það er sérkennilegt og undarlegt. Nema skýringin sé sú að enginn annar hafi boðið honum að koma og hann langi í ferðalag. Ef það er ekki skýringin þá felst í því mjög sérkennileg pólitísk afstaða hjá hinum nýja forsrh. Íslands að velja Ísrael sem land númer tvö.
Ég vil spyrja hæstv. forsrh. að því, og biðja hann að svara því skýrt hér í þingsalnum: Hefur hann lesið skýrslu Amnesty International frá árinu 1991 um mannréttindabrotin sem eru framkvæmd af herraþjóðinni í Ísrael? Las hæstv. forsrh. þessa skýrslu áður en hann ákvað að fara í heimsókn til Ísraels? Hann hefur haft hörð orð um mannréttindabrot í Austur-Evrópu, með réttu. Hann hefur haft hörð orð um mannréttindabrot annars staðar í heiminum, með réttu. Hann hefur mér vitanlega aldrei vikið einu orði að mannréttindabrotum í Ísrael. Hefur hann lesið þessa skýrslu? Skýrt svar óskast hér í þingsalnum.
Það er auðvitað líka athyglisvert að núv. hæstv. utanrrh. Íslands kaus að halda ekki áfram þeirri ætlun sinni frá því fyrir u.þ.b. tveimur árum síðan að fara í opinbera heimsókn til Ísraels.
Ég vil spyrja hæstv. forsrh. að því eins og hér hefur verið gert og óska skýrra svara: Ætlar hann í heimsókn sinni að stíga fæti sínum á hernumdu svæðin? Já eða nei. Þannig að það komi alveg skýrt fram hér í þingsalnum á Alþingi Íslendinga hvort forsrh. Íslands ætlar að leggja blessun sína ekki bara yfir mannréttindabrotin heldur líka hernumdu svæðin með því að stíga þar fæti sínum.
Það hefði verið skynsamlegra fyrir forsrh. að fresta þessari heimsókn, fara ekki, og sinna þeim vandamálum sem við blasa í íslensku þjóðfélagi. Þau eru ærin, með kjarasamninga í uppnámi og stóran hluta þjóðarinnar í uppreisn gegn aðför ríkisstjórnarinnar að velferðarkerfinu. Þá kýs hæstv. forsrh. Íslands að leggja land undir fót og fara til Ísraels. Það er sérkennilegt pólitískt mat.