Ferða- og dagpeningar opinberra starfsmanna

80. fundur
Fimmtudaginn 13. febrúar 1992, kl. 10:46:00 (3434)

     Ólafur Þ. Þórðarson :
    Herra forseti. Núv. ríkisstjórn hefur ekki svo mörgum rósum að hampa í framgöngu sinni en ég sé ástæðu til að þakka þá ákvörðun að lækka greiðslur á dagpeningum og jafnframt ástæðu til að þakka að reglur um þær greiðslur skuli birtar með þeim hætti sem hér er gert þó að vissulega geti ég tekið undir það að þessi mál þurfi að vera í athugun eins og margt annað.