Fjármálaráðherra (Friðrik Sophusson)
:
Virðulegi forseti. Ég held að það sé rangt ef skilja má hv. fyrirspyrjanda þannig að því sé haldið fram af hálfu háskólakennaranna á Akureyri að ráðuneytið hafi verið á undanförnum árum á móti stéttarfélagslegri rómantík og þess vegna kosið ráðherraröðun. Eins og þeir vita sem fengist hafa við þessi mál er svokölluð ráðherraröðun bráðabirgðafyrirkomulag á meðan verið er að finna kjarasamningum réttan farveg. Kjarasamningar af hálfu ríkisvaldsins er flókið fyrirbæri. Samningar sem ríkið verður að gera um launakjör eru á annað hundrað talsins og þess vegna hljótum við að setja reglur þar sem freistað er að gera samningana einfaldari en ella yrði.
Það kom fram í svari mínu að sú ákvörðun liggur fyrir að freista þess að gera sjálfstæðan samning milli ráðuneytisins og starfsmannanna og vonast ég til að þeir samningar verði gerðir á næstunni. Um efni þeirra get ég að sjálfsögðu ekkert sagt að svo stöddu því að enn er beðið eftir tilnefningu af hálfu samningsaðila. En um leið og hún verður gerð er hægt að hefja kjarasamningaviðræður við þessa starfsmenn Háskólans á Akureyri sem enn hafa ekki fengið formlegan kjarasamning.