Lánasjóður íslenskra námsmanna

82. fundur
Mánudaginn 17. febrúar 1992, kl. 14:25:00 (3521)

     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég taldi ástæðu til þess að spyrja um það á þessu stigi málsins, þegar ég er nú næstur á mælendaskrá, hvort það frv. sem verið er að ræða um Lánasjóð ísl. námsmanna er stjfrv. eða ekki. Alþfl. hefur lýst því yfir að talsmenn hans í umræðunum, bæði varaformaður menntmn. og hv. formaður þingflokks Alþfl. utan þings, geri alvarlegar athugasemdir við frv. Ef það er rétt að Alþfl. geri við þetta alvarlegar athugasemdir og vilji ekki samþykkja frv. eins og það liggur fyrir er þetta auðvitað ekki stjfrv. Það er alveg ljóst. Ég mæli þessi orð m.a. í framhaldi af ítrekuðum ummælum talsmanna

Sjálfstfl. á síðasta kjörtímabili um að frv. sem ekki væru frágengin í einstökum atriðum væru ekki stjfrv. Þess vegna hlýt ég að spyrja hæstv menntmrh., er þetta frv. stjfrv.?