Lánasjóður íslenskra námsmanna

82. fundur
Mánudaginn 17. febrúar 1992, kl. 18:23:00 (3531)

     Össur Skarphéðinsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Eins og ég sagði hér áðan þá hefur hæstv. menntmrh. lýst því yfir að þetta mál sé til skoðunar og þetta frv. er til skoðunar hjá menntmn. Það er alveg ljóst að þetta frv. er að því leyti til öðruvísi en mörg önnur að ráðherrann hefur lýst því yfir að hann vilji taka viðhorf námsmanna til vinsamlegrar athugunar og áður en sú vinna er búin í menntmn. þá held ég að menn ættu að spara sér allar yfirlýsingar.