Jón Helgason
:
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. forsrh. svar hans þó að ég sé því ekki sammála að þurft hafi að bíða eftir setningu reglugerðar um Byggðastofnun við undirbúning þessa máls. Svo skýrt er það orðað í lagagreininni sem ég nefndi. Vissulega væri fróðlegt að vita hvenær hæstv. forsrh. sendi erindi til Byggðastofnunar um að gera þessa áætlun.