Ingibjörg Sólrún Gísladóttir (andsvar) :
Hæstv. forseti. Mér fannst ég knúin til að veita andsvar við ræðu forsrh. hér áðan, ekki síst vegna þess að mér fannst gæta þess í málflutningi hans að við hér inni sem höfum talað gegn opinberri heimsókn hans til Ísraels séum með því að styðja eitthvert afskiptaleysi eða mæla með einhverju afskiptaleysi af málum fyrir botni Miðjarðarhafs. Því er alls ekki þannig háttað. Ég held að enginn hér mæli með afskiptaleysi. Hins vegar skiptir máli hvernig menn standa að afskiptum sínum af málum, sérstaklega á svæðum eins og þessum þar sem miklar deilur standa yfir. Og við höfum gagnrýnt það hér að forsrh. fari í opinbera heimsókn til Ísraelsríkis sem er bara einn aðili af fleirum sem eiga þátt í þessari deilu og heiðri þá þannig með heimsókn sinni og veiti þeim með því einhvers konar --- hvað getum við sagt, siðferðisvottorð, eins og hér var nefnt áðan. Ég held að hér hefði enginn maður gert athugasemd við það ef forsrh. hefði ákveðið að fara til landanna fyrir botni Miðjarðarhafs og kynna sér ástand mála og hann hefði látið þá aðila sem stjórna málum á herteknu svæðunum, þ.e. Palestínumenn sem þar stjórna málum, taka á móti sér með svipuðum hætti og hann lét ísraelsk stjórnvöld taka á móti sér. Og ég held að það hefði enginn haft neitt við það að athuga að Íslendingar hefðu, kannski ekki núna heldur fyrir löngu síðan, ákveðið að gera út þingmannanefnd og skoða ástand mála þarna eins og mörg þjóðþing hafa gert. Það er hinn sanni stuðningur við þau öfl sem þarna eru að berjast fyrir mannréttindum.