Heimsókn forsætisráðherra til Ísraels

88. fundur
Þriðjudaginn 25. febrúar 1992, kl. 19:30:00 (3768)

     Páll Pétursson (andsvar) :
    Frú forseti. Ég vil vona að sú kynning sem hæstv. forsrh. sá um á ályktun Alþingis í Ísrael eigi eftir að bera árangur. Það urðu ekki skjót viðbrögð við ályktuninni í þá átt sem Alþingi ætlaði, ekki skjót viðbrögð í jákvæða átt, miklu fremur hið gagnstæða.