Borist hafa svohljóðandi bréf, hið fyrsta dags. 27. febr. 1992:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær
vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að vegna sérstakra anna 1. varamanns Samtaka um kvennalista í Reykjavík taki 2. varamaður Samtaka um kvennalista, Guðný Guðbjörnsdóttir uppeldisfræðingur, sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.``
Undir þetta bréf skrifar hv. 15. þm. Reykv., Kristín Einarsdóttir.
Þessu bréfi fylgir annað bréf sem er frá 1. varamanni Samtaka um kvennalista í Reykjavík, Guðrúnu J. Halldórsdóttur, sem reyndar hverfur af þingi nú í dag en bréfið er dags. 27. febr. 1992 og er svohljóðandi:
,,Þar sem ég hef setið á Alþingi undanfarnar þrjár vikur sem varamaður Kristínar Ástgeirsdóttur, 18. þm. Reykv., get ég ekki vegna starfs míns tekið sæti Kristínar Einarsdóttur, 15. þm. Reykv., nú.``
Undir þetta bréf ritar Guðrún J. Halldórsdóttir.
Kjörbréf Guðnýjar Guðbjörnsdóttur hefur verið rannsakað en hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og undirritað drengskaparheit. Hún er boðin velkomin til starfa á Alþingi.
Borist hefur bréf dags. 27. febr. 1992:
,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska eftir því að 1. varamaður Framsfl. í Norðurl. e., Guðmundur Stefánsson framkvæmdastjóri, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.``
Undir þetta bréf ritar Guðmundur Bjarnason, 1. þm. Norðurl. e.
Kjörbréf Guðmundar Stefánssonar, varamanns Framsfl. í Norðurl. e., hefur verið rannsakað og samþykkt. Guðmundur Stefánsson hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber nú samkvæmt 2. gr. þingskapa að undirrita drengskaparheit um að halda stjórnarskrána.