Frsm. meiri hluta landbn. (Egill Jónsson) :
Virðulegi forseti. Ég þakka þá málefnalegu umræðu sem hér hefur farið fram og sérstaklega fagna ég þeim orðum hæstv. landbrh. að hann muni ræða sérstaklega við Stéttarsamband bænda um með hvaða hætti bráðabirgðaákvæðið gæti gengið fram og þá væntanlega á þeim grundvelli að það yrði sem líðanlegast fyrir bændur landsins.
Það kom fram í máli hv. þm. Ragnars Arnalds að upplýsingar sem ég gaf í landbn. hefðu verið á annan veg heldur en það sem hefði komið fram í fyrirspurnatíma í morgun. Það sem ég sagði um þessi efni var raunar ekki úr landbrn., hefur kannski verið ónákvæmt frá minni hendi, en ég hafði það eftir formanni Stéttarsambands bænda.
Ég er ekki alveg viss um að við hv. þm. Ragnar Arnalds skiljum hvor annan í þessum efnum. Það sem mér tókst eftir að lægi fyrir að yrði haft til viðmiðunar í landbrn. var að á þá niðurfærslu á fullvirðisrétti, sem kann að eiga sér stað, væri litið sem skaðabætur eða bætur. Og þá slíkar bætur til þeirra sem á jörðunum sitja. Þetta var það sem ég var að reyna að koma á framfæri í landbn. og má vera að um þetta mál hefði þurft víðtækari og aflmeiri umræðu en þar var. En ég bendi á það, sem reyndar kom fram í máli hæstv. landbrh. áðan, að mál sem þessi þurfa náttúrlega að fara í umræðu til þeirra sem hlut eiga að máli. Mér finnst tæpast nokkur leið að afgreiða jafnstefnumarkandi ákvörðun sem þessa öðruvísi en hún hafi verið rædd hjá þeim sem eiga hlut að máli. Og ég vek aðeins athygli á því að hv. frsm. minni hlutans, Jóhannes Geir Sigurgeirsson, lagði fram í nefndinni tillögu sem mér fannst og finnst vera alveg sjálfgefið að komi til löggildingar í búvörulögunum en hún snerti skipulag þessara samtaka, þó reyndar væri hægt að finna um það fundasamþykktir að hér ætti breyting að verða á. En þrátt fyrir þetta féllst sá hv. þm. á að geyma þá tillögu til betri tíma þannig að mér þætti afar mikilvægt ef við gætum komist að þeirri niðurstöðu að t.d. yrði horfið að því ráði, sem hæstv. landbrh. talaði hér um, að fram kæmi tillaga á þinginu um breytingar á búvörulögunum sem fæli þetta í sér og þá skyldi ekki standa á mér og skárra væri það að hún gæti ekki gengið til þeirrar eðlilegu umfjöllunar sem slík tillaga þarf að fá.