Norður-Atlantshafsþingið 1991

91. fundur
Fimmtudaginn 27. febrúar 1992, kl. 14:07:00 (3833)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Forseti hefur gert samkomulag um utandagskrárumræðu og telur það rétta fundarstjórn að fara eftir slíku samkomulagi. Það er ekki verið að loka fyrir umræðu um þessa skýrslu heldur einungis verið að fresta henni. Forseti væntir þess að þingmenn fái síðar næg tækifæri til að ræða hana til hlítar.