Framleiðsla og sala á búvörum

91. fundur
Fimmtudaginn 27. febrúar 1992, kl. 14:21:00 (3835)

     Ragnar Arnalds :
    Virðulegi forseti. Við alþýðubandalagsmenn teljum það illa byrjun á efndum búvörusamnings að byrja á því að brjóta hann. Við getum alls ekki á það fallist að bændur eigi að bera bótalaust þann kostnað sem felst í því að þessum greiðslum er frestað. Ég segi nei.