Framleiðsla og sala á búvörum

91. fundur
Fimmtudaginn 27. febrúar 1992, kl. 14:27:00 (3839)

     Ragnar Arnalds :
    Virðulegi forseti. Þrátt fyrir þá alvarlegu ágalla sem eru á þessu frv. tel ég að málið sé það mikilvægt í eðli sínu og jákvætt að það nái fram að ganga að ég tel ekki ástæðu til að standa í vegi fyrir framgangi málsins. Ég segi því já.