Framleiðsla og sala á búvörum

92. fundur
Föstudaginn 28. febrúar 1992, kl. 11:26:00 (3899)

     Ragnar Arnalds :
    Virðulegi forseti. Það er alvarlegur ágalli á þessu frv. vegna þess að frv. veitir ráðherra heimild til þess að fresta seinustu greiðslunum sem ganga eiga til bænda á þessu ári. Hitt væri þó miklu verra ef frv. næði ekki fram að ganga og málið leystist upp og ekkert yrði af framkvæmd búvörusamnings. Þess vegna get ég alls ekki á það fallist að þó að þessi ágalli sé á sé rétt að málið dagi uppi og því hlýt ég að segja já.