Umferðarlög

92. fundur
Föstudaginn 28. febrúar 1992, kl. 14:07:00 (3915)

     Kristinn H. Gunnarsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Fyrst sagði síðasti ræðumaður að ég hefði farið með rangt mál og síðan sagði hann að ég hefði farið með rétt mál svo að ég þarf ekki að leiðrétta það. Ég vil aðeins undirstrika það sem er kjarninn í þessu máli hvað varðar Kvennalistann, fyrst það mál var vakið upp, að Kvennalistinn styður báðar breytingarnar. Bæði um tilflutning verkefnisins og um miðstýringuna, valdasamþjöppunina.