Fráveitumál sveitarfélaga

92. fundur
Föstudaginn 28. febrúar 1992, kl. 14:20:00 (3920)

     Margrét Frímannsdóttir :
    Virðulegi forseti. Þar sem ég er annar tveggja flm. að till. til þál. á þskj. 198 um fráveitumál sveitarfélaga vil ég aðeins koma hér til að þakka hv. nefndarmönnum umhvn. fyrir umfjöllun þeirra og afgreiðslu og tel að sú tillaga, sem nefndin flytur, feli í sér allt það sem við lögðum til í tillögu okkar sem var rædd hér fyrr í vetur.