Þorskeldi

95. fundur
Fimmtudaginn 05. mars 1992, kl. 11:50:00 (3996)



     Stefán Guðmundsson (andsvar) :
    Herra forseti. Ég held að það sé rétt að við tölum sama mál í þessu. Ég vil svara hv. þm. því að framlag Byggðastofnunar, eftir því sem ég man best, mun vera rúm 14% í þessu fyrirtæki. Næst kemur Arnarneshreppur líklega með ein 10,4% og næst Útgerðarfélag Akureyringa. Þetta munu vera stærstu aðilar að þessu fyrirtæki. En auðvitað má deila um það lengi hvort Byggðastofnun réði úrslitum í þessum máli en lóðið var þungt, það eitt er öruggt.