Hrafnkell A. Jónsson :
Herra forseti. Ég efast ekki um að flm. þessarar þáltill. vilja vel en ég verð þó að segja þótt ég eigi heima utan höfuðborgarsvæðisins að mér finnst stefnumótun af þessu tagi geta orkað mjög tvímælis. Það er talað um það í tillögu að meiri hluti nýrra starfa á vegum ríkisins verði utan höfuðborgarsvæðisins. Vitaskuld er það eftirsóknarvert fyrir byggðir landsins að fá sem stærstan hluta af nýjum störfum í opinbera geiranum í sinn hlut en í mínum huga er alls ekki sama hvernig að því er staðið og um hvaða störf er að ræða. Ég get tekið undir það sem kom fram hjá hv. þm. Guðmundi Stefánssyni að til að mynda flutningur Skógræktar ríkisins á Egilsstaði er dæmi um verkefni sem tókst vel aðallega vegna þess að sú stofnun, Skógrækt ríkisins, er stofnun sem hægt er að setja niður nánast hvar sem er.
Ég fullyrði það hins vegar, eftir að hafa starfað að sveitarstjórnarmálum á annan áratug, að hluti þeirrar stjórnsýslu sem sveitarstjórnarmenn þurfa að sækja er hvergi betur kominn heldur en á þessu svæði. Og til þess liggja ákaflega einföld rök. Við ræddum á fundi í gær breytingar á flugmálaáætlun. Við höfum byggt upp samgöngukerfið í þessu dreifbýla landi sem byggir mikið á flugi og við breytum þeim staðreyndum ekki svo auðveldlega. Við erum búin að setja niður nokkra flugvelli. Við erum með samgöngunet sem miðar að því að á þessu svæði sé ákveðin miðstöð og ég sé það fyrir mér að ef hluti þeirrar stjórnsýslu sem við í dag þurfum að sækja til Reykjavíkur yrði dreift verulega meira þá mundi það einfaldlega auka verulega þann kostnað sem við, sem búum utan Reykjavíkur, höfum af því að halda þar uppi því lífi sem nauðsynlegt er þannig að mér finnst að menn verði a.m.k. að hugsa sig mjög vandlega um áður en farið er að binda það í samþykktum frá Alþingi að eitthvert tiltekið hlutfall starfa í opinberri þjónustu eigi að setja niður utan Reykjavíkur.
Það má hins vegar ekki taka orð mín þannig að ég sé að leggjast gegn því að sú opinbera þjónusta sem á heima utan höfuðborgarsvæðisins og getur verið þar án þess að það auki kostnaðinn umtalsvert sé sett þar niður. Mér finnst sem sagt full ástæða til þess, jafnvel fyrir okkur sem komum úr kjördæmum utan Reykjavíkur og Reykjaness, að við hugsum okkur vandlega um þannig að við förum ekki offari í því að gæta hagsmuna dreifbýlisins, þannig að það komi ekki í bakið á okkur.