Jón Helgason :
Hæstv. forseti. Að sjálfsögðu er það rétt hjá hv. síðasta ræðumanni að ekki má vinna þannig að þessu máli að það valdi meiri erfiðleikum en ávinningi, t.d. með því að flytja í heilu lagi stofnanir sem þurfa að þjóna landinu öllu og best liggur við að hafa hér. Þá koma náttúrlega fljótt í upp í hugann stofnanir eins og Byggðastofnun. Við minnumst umræðunnar um hana frá því í fyrrasumar en menn töldu að hún ætti a.m.k. ekki heima uppi á Hveravöllum. Það er hins vegar ekki það sem flutningsmönnum þessarar till. er í huga, heldur fyrst og fremst hitt að það eru að verða svo gífurlegar breytingar á tækni og allri aðstöðu, reyndar í beinum samgöngum, eins og hv. 1. þm. Norðurl. e. nefndi áðan, en líka í tækni þannig að það skiptir kannski ekki svo miklu máli hvar menn eru settir. Menn geta unnið störfin í mikilli fjarlægð. Segja má að með hverjum degi sem líður, hvað þá heldur hverju ári, vaxi möguleikar á að dreifa þannig búsetu manna sem vinna að sambærilegum verkefnum. Það er kannski ekki síst þetta sem má hafa í huga í sambandi við þetta mál fyrir utan það sem bent hefur verið á eins og Skógræktina þar sem þetta hentar beinlínis. En það hlýtur auðvitað að vera markmið að reyna að færa þjónustuna eins nálægt þeim sem á henni þurfa að halda og mögulegt er og skipting niður í deildir er ekki eins miklum erfiðleikum háð og áður.