Ólafur Ragnar Grímsson (andsvar) :
Virðulegi forseti. Það sama hvarflaði að mér og hv. þm. Jóhannesi Geir Sigurgeirssyni að hv. þm. Össur Skarphéðinsson væri að undirbúa brottför sína úr Alþfl. en ég skildi ræðuna hins vegar þannig að hann væri að æfa sig í Thatcher-lofsöngnum áður en hann héldi inn í Sjálfstfl. Ég veit að vísu og það voru ýmsir sameiginlegir vinir okkar sem veltu því fyrir sér fyrir ári síðan hvers vegna hv. þm. hefði millilent í Alþfl. því að þeir þóttust kenna hjá honum ýmsar svona rétttrúnaðarkenningar af hægra taginu og þessi lofsöngur um Margréti Thatcher sem hér var fluttur áðan var satt að segja alveg stórbrotinn.
British Council er nú búinn að vera til í Bretlandi obbann af þessari öld, löngu áður en Margrét Thatcher komst til valda. Og þótt hv. þm. hafi hlotið einhvern styrk frá British Council sem mér skilst að hafi verið styrktarstofnunin þegar hann nam fiskeldisfræði í Bretlandi, þá er nú ansi langt seilst í lofgerðinni um Margréti Thatcher að eigna henni British Council því að ef ég man rétt, þá held ég einmitt að Margrét Thatcher hafi skorið niður fjármagnið til British Council og hún lagði einmitt mikla steina í götu erlendra stúdenta með því að stórhækka þau námsgjöld sem erlendir stúdentar þurfa að greiða í Bretlandi og þess vegna eru nú mun færri íslenskir stúdentar hlutfallslega við nám í Bretlandi en voru áður.
En kannski er það boðberi nýrra tíðinda að hv. þm. Össur Skarphéðinsson er farinn að lofsyngja Margréti Thatcher á þann veg sem hann gerði hér og tók auðvitað Sjálfstfl. langt fram því að það hefur enginn þingmaður Sjálfstfl. leyft sér og þorað að lofsyngja Margréti Thatcher á þann hátt sem þingmaðurinn gerði áðan.
Ég fagna því hins vegar að þingmaðurinn er þess hvetjandi að iðnrh. komi inn í þessa umræðu. Ég tek undir það. Hins vegar skil ég ekki alveg þessa árás á sjútvrh. en það er auðvitað athyglisvert í þessari umræðu að Árni R. Árnason réðst sérstaklega á félmrh. Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir afskiptaleysi hennar af atvinnumálum á Suðurnesjum. Við tókum öll eftir þeirri árás og hv. þm. Össur Skarphéðinsson kemur hér upp til þess að ráðast sérstaklega á Þorstein Pálsson og gagnrýna hann fyrir afskiptaleysi hans af atvinnumálum í Reykjaneskjördæmi.