Hringvegurinn

96. fundur
Föstudaginn 06. mars 1992, kl. 13:03:00 (4060)

     Þuríður Backman (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Mér heyrðist hv. 5. þm. Austurl. ekki vera að tala fyrir þáltill. heldur reyna að draga úr málinu og standa í raun og veru í vegi fyrir því að farið sé í þetta átak. Með því að blanda þessu átaki saman við framkvæmdir í almennri vegagerð á landinu er verið að drepa málið niður. Hann hefði frekar átt að mótmæla niðurskurði á fé til vegaframkvæmda og standa þannig að því máli sem hann var að tala hér fyrir áðan.