Jóhannes Geir Sigurgeirsson
:
Virðulegi forseti. Ég vil benda á að gengið hefur verið þannig frá dagskrá þessa fundar að fyrir það fyrsta tengjast fimm fyrstu málin efh.- og viðskn. beint og óbeint og þau voru sett á dagskrá enda þótt það hefði átt að vera vitað fyrir að formaður efh.- og viðskn. og reyndar tveir aðrir nefndarmenn voru á ferð á vegum sjútvn. í dag þannig að þau falla öll niður. Síðan er dómsmrh. ekki mættur til að mæla fyrir máli og þá virðist ekki hafa verið kannað eða gert ráð fyrir því hvernig háttað var með 7. mál, en 1. flm. þess máls boðar forföll, og nú er komið hér að 9. máli, vernd og veiðar á villtum spendýrum og fuglum, og það er ekkert við því að segja nema ég held, virðulegi forseti, að það verði að gefa þeim málssvörum viðkomandi flokka viðvart eða tækifæri til að vera viðstaddir þessa umræðu sem e.t.v. reiknuðu ekki með því að þetta frv. kæmi á dagskrá svo snemma.