Virðulegi forseti. Sem svar við þessari fsp. vil ég segja að ekki stendur til af hálfu ríkisstjórnarinnar að falla frá þessari skattheimtu, sem hv. þm. kýs að kalla svo en er í raun skerðing á bótum úr ríkissjóði. Það kemur til greina að minni hálfu að skipa í sumar hóp til að kanna hvernig sjómannaafslátturinn fer samkvæmt nýjum lögum, enda var á það minnst í þeirri brtt. sem flutt var á sínum tíma þegar það mál var til afgreiðslu hér á hinu háa Alþingi.
Varðandi barnabæturnar þá kemur að sjálfsögðu til greina í því máli, eins og mörgum öðrum, að líta á annað kerfi, kanna hvort hægt sé að ná sama árangri fyrir ríkissjóð með öðrum hætti. Meginmarkmiðið er þó hið sama, nú eins og áður, við teljum að það besta sem við getum gert í þeirri stöðu, sem ríkisstjórnin er í, sé að sjá til þess að halli á ríkissjóði sé sem allra minnstur og að lánsfjárþörfin dragist saman þannig að okkur auðnist að lækka skatta og framkalla þann stöðugleika sem hér þarf að vera. Þannig stendur ekki til að gera breytingar sem geta kostað ríkissjóð fjármuni.