Heilbrigðisráðherra (Sighvatur Björgvinsson)
:
Virðulegi forseti. Ég vil leiðrétta misskilning sem fram kom hjá hv. fyrirspyrjanda. B-6 álman á Borgarspítalanum lokaði ekki vegna niðurskurðar á fé eða sparnaðar heldur vegna þess að ekki fengust hjúkrunarfræðingar til starfa við B-álmuna og þeir sem málum stjórnuðu töldu sig ekki geta haldið uppi þeirri starfsemi sem þar fór fram eingöngu með sjúkraliða í starfi en engan hjúkrunarfræðing. Það er því ekki rétt að B-6 álman hafi lokað vegna niðurskurðar. Ég á hins vegar von á því að það geti orðið auðveldara að fá hjúkrunarfræðinga til starfa á næstunni þannig að hægt verði af þeim sökum að opna B-6 á ný.
Ég held að flestum hv. þm. hafi verið ljóst að í tilboði samninganefndar ríkisins til St. Jósefsspítala, Landakoti fólst tilboð um að auka þar við hjúkrunarrými fyrir aldraða upp á 50 rúm þannig að ég á von á því að hjúkrunarrúmum fyrir aldraða í Reykjavík geti fjölgað en ekki fækkað.
Hver verður framtíð St. Jósefsspítala í Hafnarfirði? Ég vona að hún verði góð og ég veit ekki betur en sá spítali geti, miðað við þá afgreiðslu sem ég á von á að hann fái, sinnt sínu hlutverki með mjög ákjósanlegum og eðlilegum hætti, þar á meðal þjónustuna við það aldraða fólk sem hann hefur sinnt með góðum árangri til þessa. Mér er mikil ánægja að skýra frá þessu, virðulegi forseti, og ég þakka hv. fyrirspyrjanda fyrirspurnina.