Umferðarlög

98. fundur
Þriðjudaginn 10. mars 1992, kl. 15:15:00 (4142)

     Kristinn H. Gunnarsson :
    Virðulegi forseti. Samkvæmt núgildandi umferðarlögum ber að endurskoða þau fyrir árslok 1991. Það var ekki gert. Hins vegar hefur verið upplýst í nefndinni að endurskoðun laganna standi yfir í ráðuneytinu. Ég tel ótímabært að taka ákveðinn þátt út úr þessari endurskoðun og afgreiða hann sér, sérstaklega þegar þess er gætt að um er að ræða aukna skattheimtu á unglinga. Ég segi því já.