Halldór Ásgrímsson
(andsvar)
:
Herra forseti. Ég tel mikilvægt að hv. 3. þm. Reykv. hafi upplýst að í reynd telji hann viðskiptin við Sovétríkin hafa verið óhagkvæm fyrir Íslendinga. Þessi skoðun kemur ekkert á óvart vegna þess að hún hefur birst á síðum Morgunblaðsins árum saman og hv. núv. þm. ritað um þessi mál. Í hvert skipti sem gera átti samninga við Sovétríkin birtust leiðarar í Morgunblaðinu sem báru þess vitni að þau öfl í samfélaginu voru mjög andstæð þessum samningum. Ég vil hvetja hv. þm. til að ræða það við íslenskan sjávarútveg, íslenska atvinnuvegi, hvort þessi viðskipti voru hagstæð eða ekki. Og ég vil leyfa mér að spyrja: Fagnar hv. þm. því að engin síldarviðskipti eru nú við Sovétríkin og hvar telur hann vera líkur á að endurvinna þá síldarmarkaði? Ætli það sé ekki alveg ljóst að ef við eigum að gera okkur einhverjar vonir um að selja síld í þeim mæli sem við höfum gert, þá verðum við að leita aftur inn á markaðina í Austur-Evrópu. Og það er alveg ljóst að fyrst í stað, a.m.k. á meðan gjaldeyrisviðskipti eru að þróast þar, verða að koma til vöruviðskipti. Ég tel það mikilvægt að hv. þm. hefur upplýst þetta við umræðuna. Ég vil lýsa því yfir að ég er algerlega ósammála þessu og tel í reynd að þessi viðskipti hafi sannað sig í gegnum tíðina og verið okkur Íslendingum mjög hagkvæm.