Jöfnun á flutningskostnaði olíuvara

98. fundur
Þriðjudaginn 10. mars 1992, kl. 17:56:00 (4163)

     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Herra forseti. Mér er fullkunnugt um það að frv. gerir ráð fyrir að ekki verði öll jöfnun á olíuvörum afnumin. Það var ég ekki að tala um. Ég ræddi eingöngu um bensínverð og hinar afskekktu afhendingarstöðvar og hættuna á að þær mundu leggjast niður. Ég tel að sú hætta sé fyrir hendi.
    Þeirrar verðsamkeppni í olíuvörum, sem hv. þm. minntist á, eins og hún hefur verið hingað til, hefur ekki mikið gætt svo að ég viti. Eins og ég sagði þá hef ég ekki orðið var við þrýstinginn á það að afnema þessa verðjöfnun. Ég endurtek það.