Fyrirspyrjandi (Ólafur Ragnar Grímsson):
Virðulegi forseti. Það var ekki ég sem innleiddi það í umræðuna hver hefði verið auglýsingakostnaður fjmrn. frá því að Friðrik Sophusson tók við. Það var núv. hæstv. fjmrh. Friðrik Sophusson sjálfur sem kom með það inn í umræðuna. Ekki var tilefni til þess af minni fsp., hún var um annað tímabil. Fyrst ráðherrann kaus sjálfur að koma með það inn í umræðuna þá verður hann að una því að sitja undir að menn taki það þá til umfjöllunar. Hvað var það sem fjmrn. auglýsti sérstaklega á fyrstu fjórum mánuðum síðasta árs? Ég skal svara því. Það var að fyrirtæki ættu að hafa sjóðvélar. Þeir sem ekki hefðu sjóðvélar í virðisaukaskattinum, sem stimpluðu rétt inn viðskiptin, ættu von á því að það yrði lokað hjá þeim. Síðan voru sérstakar eftirlitssveitir sendar í öll fyrirtæki á landinu til þess að ganga úr skugga um það að þetta yrði gert. Það er alveg rétt. Þær voru ráðnar tímabundið í upphafi vegna þess að þetta var tilraun sem menn vissu ekki hvernig mundi gefast. Sem betur fer gafst hún mjög vel. Sem betur fer tóku nær öll fyrirtæki þessu mjög vel. Það hefði verið ætlun mín að halda því áfram vegna þess að þegar ég kom í fjmrn. þá sannfærðist ég um það að hin slaka innheimta á söluskattinum og sú linka sem hafði verið varðandi innheimtu á sköttum var alvarlegt mein í fjármálakerfi okkar. Ég tók þess vegna þá ákvörðun að loka fyrirtækjum sem greiddu ekki söluskatt um mitt ár 1989. Hvað gerði Sjálfstfl. þá? Hann hélt sérstakan þingflokksfund í þinghúsinu sumarið 1989 og krafðist þess að ég segði af mér vegna þess að ég hefði farið að loka fyrirtækjum sem ekki borguðu söluskatt.
Auðvitað vekur athygli að núv. hæstv. fjmrh. leggur þetta allt saman til hliðar. Hann hættir að auglýsa og segja mönnum að þeir verði að hafa sjóðvélar og verði að standa skil á virðisaukaskatti. Hann hættir að tilkynna fyrirtækjunum að lokað verði hjá þeim ef þau hafa ekki sjóðvélar með réttum hætti. Núv. hæstv. fjmrh. lagði allt þetta eftirlit og alla þessa hvatningu til hliðar og hann komst að þeirri niðurstöðu að engin ástæða væri til þess að hafa þessar eftirlitssveitir áfram. Hvað gerðist? Það gerðist í október að innheimtan á virðisaukaskattinum hrynur. Hæstv. fjmrh. hefur mikið gert úr því opinberlega að mikill halli hefði verið á síðasta ári. En við höfum auðvitað tekið eftir því að hann hefur nánast ekkert talað um það að stærsta talan í þeim mikla halla er það hrun sem varð í innheimtu virðisaukaskatts á síðustu fjórum mánuðum ársins þrátt fyrir að veltan í þjóðfélaginu væri mun meiri en gert var ráð fyrir í forsendum fjárlagafrv. þannig að innheimtur virðisaukaskattur hefði átt að aukast, hæstv. fjmrh., ef allt hefði verið með réttu af því að veltan í þjóðfélaginu var meiri en tekjuforsendur fjárlagafrv. og áætlanir um innheimtu virðisaukaskattsins gerðu ráð fyrir. Auðvitað er athyglisvert að núv. hæstv. fjmrh. hefur lagt meira upp úr því að ráðast á síðustu ríkisstjórn í ummælum sínum um hallann á síðasta ári en að skýra út fyrir þjóðinni hvernig stendur á því að innheimtan á virðisaukaskattinum hefur hrunið um 2 milljarða á síðustu fjórum mánuðum ársins þegar eftirlitskerfið var lagt til hliðar, þegar hætt var að auglýsa og segja fyrirtækjunum að nú yrði lokað hjá þeim. Auðvitað vekur það grunsemdir um það að fyrirtækin drægju þá ályktun að nú þegar Sjálfstfl. væri kominn í fjmrn., yrðu teknir upp sömu hættir og þegar Sjálfstfl. var áður í fjmrn., það voru engar sérstakar aðgerðir til þess að hvetja menn til að standa í skilum með skattana. Það er staðreynd, hæstv. fjmrh. Ég ætla ekki að biðjast neinnar afsökunar á því og ég ætla ekki að draga nein ummæli til baka vegna þess að hæstv. fjmrh. hefði átt að verða fyrstur manna til þess að koma fram opinberlega og fjalla um hvernig stendur á stórslysinu í ríkisfjármálum á síðustu fjórum mánuðum ársins, því að stórslysið í ríkisfjármálunum á síðustu fjórum mánuðum ársins var hrunið í innheimtunni á virðisaukaskattinum. Það var það sem gerðist. Það voru stóru tíðindin í ríkisfjármálunum á Íslandi á seinni hluta síðasta árs. En um það hefur hæstv. fjmrh. viljað lítið tala. Ég fagna því hins vegar að hann segist vera reiðubúinn til þess að ræða það í þinginu núna og hann skal aldeilis fá þá umræðu. Einn þingmaður Alþfl. er að spyrja á eftir, ég held að það sé næsta fsp. á dagskrá: Hvað ætlar hæstv. fjmrh. að gera vegna skattsvika? Einn stjórnarþingmaðurinn sér ástæðu til þess núna þegar hann sér hrunið í innheimtunni á virðisaukaskattinum að spyrja hvað fjmrh. ætli að gera varðandi skattsvikin. Sjálfstfl. getur ekki eytt þessari hrópandi staðreynd um stjórn Sjálfstfl. á innheimtu skatta með því að draga auglýsingakostnað frá minni tíð inn í umræðuna með þeim hætti sem hér hefur gerst. Ég mun ekki, hæstv. fjmrh., biðjast afsökunar á þessum ummælum né draga þau til baka. Þvert á móti tel ég það skyldu mína að herða á í þessari umræðu á næstunni.