Kristinn H. Gunnarsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Ég tók eftir því að forseti sagði að fsp. hefði verið svarað. Í fsp. sem er á þskj. 422 í þremur liðum og undirliðum er spurt um ákveðnar upphæðir, hvernig ákveðin tala skiptist. Ég heyrði aldrei það svar, virðulegi forseti. Hins vegar hef ég undir höndum skjal sem var dreift hér en er ekki þingskjal og ég spyr forseta: Svara menn þinglegri fsp. með skjölum sem ekki eru þingskjöl? Svara menn munnlegum fsp. með þeim hætti? Ég vil mótmæla því, virðulegi forseti, að fsp. hafi verið svarað.