Kristín Ástgeirsdóttir
:
Virðulegi forseti. Nú er til meðferðar í félmn. frv. um starfsmenntun í atvinnulífinu en í umræðum um það mál kom fram að hæstv. menntmrh. hygðist leggja fram frv. um fullorðinsfræðslu. Ég held ljóst sé að lengi hefur vantað heildstæða löggjöf um fullorðinsfræðslu hér á landi og hvernig hún ætti að tengjast öðrum skólastigum. Ég held að það sé ekki síst nauðsynlegt nú í ljósi vaxandi atvinnuleysis og samdráttar í þjóðfélaginu að huga að menntun fullorðinna ef það mætti verða til þess að bæta möguleika þeirra til þess að komast í önnur störf eða ný störf. Einnig er nauðsynlegt að horfa á fullorðinsfræðslu og fullorðinsmenntun í samhengi við starfsmenntun í atvinnulífinu. Því er hér lögð fram fsp. til hæstv. menntmrh. svohljóðandi:
,,1. Hvernig miðar undirbúningi þess að lagt verði fram á Alþingi frumvarp til laga um fullorðinsfræðslu?
2. Hvenær hyggst ráðherra leggja frumvarpið fram?
3. Hvernig og í hve miklum mæli hyggst ráðherra nýta fræðsluvarpið sem kennslumiðil í fullorðinsfræðslu?``
Varðandi þriðju spurninguna er vert að minna á það að um tíma var rekið fræðsluvarp á vegum Ríkissjónvarpsins en því var síðan hætt vegna peningaleysis að því er sagt var. Ég held ég þurfi vart að taka fram hvílíkur skaði það var að því skyldi hætt, en sjónvarp hefur auðvitað mikla möguleika í allri fullorðins- og almenningsfræðslu í landinu.