Kristinn H. Gunnarsson
:
Virðulegi forseti. Eðlilegt er að spurt sé um væntanlegar eða hugsanlegar breytingar á kerfinu í ljósi áforma ríkisstjórnarinnar að hækka vexti í félagslega kerfinu. Það hefur ýmsar afleiðingar að hækka vextina. Því hefur verið mætt með þeim rökum að vaxtabótakerfið muni bæta því fólki það upp sem lægstar hefur tekjur. Fleira þarf að hafa í huga í þessu máli. Vaxtabótakerfið nær ekki til allra íbúðaforma. Það bætir ekki vaxtahækkun þeirra sem eru með húsnæðisbætur, það bætir ekki kjör þeirra sem eru í leiguhúsnæði, félagslegu kerfi eða Búsetakerfinu. Lán Byggingarsjóðs verkamanna eru svokölluð ,,annuitets-lán`` og hefur það þær afleiðingar í för með sér að hækkun vaxta þýðir að af hverri afborgun lækkar hlutur afborgunar þannig að eignamyndunin verður ákaflega hæg eða hverfur jafnvel á mjög löngum tíma á fyrri hluta lánstímans eða lengur. Ég bað um að þetta yrði reiknað sérstaklega út og ég veit ekki annað en það sé verið að gera það hjá Húsnæðisstofnun ríkisins.