Ólafur Ragnar Grímsson
(um þingsköp)
:
Virðulegi forseti. Það er satt að segja að verða pínulítið þreytandi hvernig hæstv. forseti fer alltaf í vörn fyrir ráðherrana þegar vikið er að þeim hér í þinginu. Auðvitað er mér kunnugt um að einstakir þingmenn geta beðið um skýrslu eftir þingsköpum eins og forseti var að vitna hér til. Ég þarf engar leiðbeiningar frá virðulegum forseta um það. Það sem ég var hins vegar að nefna áðan var að hæstv. sjútvrh. notfærði sér það, sem ýmsir ráðherrar hafa gert, m.a. á þessu þingi, ég nefni t.d. hæstv. utanrrh., að þeir hafa haft frumkvæði að því sjálfir að koma með mál til þingsins í formi skýrslu sem þeir flytja án þess að þingmenn biðji um það. Það var það sem ég var hér að gera, að koma þeirri ósk á framfæri til hæstv. sjútvrh. að hann hefði frumkvæði að því sjálfur á næstunni eins og ýmsir ráðherrar hafa gert í sínum málaflokkum á þessu þingi. Það er algjör óþarfi fyrir hæstv. forseta að benda á einhverjar aðrar leiðir í þessum efnum. Það er bara allt annað mál.