Seðlabanki Íslands

102. fundur
Mánudaginn 16. mars 1992, kl. 15:12:00 (4384)

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég vil gera hér eina mjög ákveðna athugasemd við mál hv. 6. þm. Norðurl. e. þar sem hann hélt því fram að ég hefði varið fákeppnismarkaðinn á fjármagnssviðinu. Sannleikurinn er að sjálfsögðu þveröfugur við þetta. Ég hef á mínum starfstíma sem viðskrh. einmitt beitt mér fyrir opnun fjármagnsmarkaðarins, aukinni samkeppni á honum og þar með bætt hlut viðskiptavina fjármagnsstofnananna á þann hátt. En auðvitað er þessi ferð ekki á enda gengin og mörg verkefni fram undan, m.a. það sem nú liggur fyrir þessu þingi að samþykkja í mynd frv. sem við ræðum hér í dag.