Vernd og veiðar á villtum fuglum og spendýrum

103. fundur
Þriðjudaginn 17. mars 1992, kl. 17:36:00 (4420)

     Umhverfisráðherra (Eiður Guðnason) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Það er hlutverk löggæslumanna að sjá um það að lögum sé framfylgt en það er hins vegar ekki venjan að löggjafinn spyrji löggæslumennina hvort þeir ætli að framfylgja þeim lögum sem löggjafinn setur.