Tilhögun þingfundar

103. fundur
Þriðjudaginn 17. mars 1992, kl. 17:45:00 (4425)

     Guðni Ágústsson :
    Hæstv. forseti. Fyrir um hálftíma barst mér tilkynning um að hér yrði kvöldfundur og mér kom það talsvert á óvart og hér hefur forseti tilkynnt það af forsetastóli. Ég vil spyrja eftir því hvort um þetta ríki samkomulag, hvort það hafi verið rætt með forustumönnum flokkanna og hvort það sé samkomulag fyrir því að halda hér áfram fram eftir kvöldi.