Tilhögun þingfundar

103. fundur
Þriðjudaginn 17. mars 1992, kl. 17:47:00 (4427)

     Valgerður Sverrisdóttir :
    Hæstv. forseti. Mér var kunnugt um það strax klukkan hálftvö í dag að reikna mætti með kvöldfundi og þó ég hafi ekki gert ráðstafanir til þess að boða þingmönnum það sérstaklega þá vil ég benda hv. þm. á að þetta stendur á töflunni í þingflokksherbergi Framsfl. Ég veit að það er engin skylda að koma þar inn á þessum dögum þegar ekki eru þingflokksfundir en starfandi formaður þingflokksins hafði þennan hátt á og vona ég að það sé tekið tillit til þess af hálfu þingmannsins.